|
|
26.10.2008 16:10:22 / siggatr
Jæja, þá er ég bara mætt á klakann. Ekki útaf því að Kúba var leiðinleg, heldur greindist hún mútter með heilaæxli, góðkynja samt, þannig að ég gat eiginlega ekki hugsað mér að vera svona langt í burtu þegar hún færi í aðgerðina. Núna tekur bara við málfræði 3 í HÍ sem ég fæ að taka upp núna. Ofsa gaman  Ég á örugglega ekki eftir að blogga hérna fyrst maður er komin heim, þannig að ég heyri bara í ykkur snúllum
»
29.09.2008 20:20:49 / siggatr
Jæja, núna fer maður bara ad detta í mánuðinn hérna á Kúbu. Og við bara farnar ad gerast menningarlegar. Í fyrradag fórum við á danssýningu ásamt fleirum, vid héldum að við værum að fara að sjá nútíma dansa en það var einhver smámiskilningur í gangi. Sátum í 2 klst og horfðum á þjóðdansa frá hinum ýmsi löndum í S-Ameríku og frá Spáni, sem var svo sem ágætt. Fyrsta klukkutíman eða svoJ En mér var nú allri lokið þegar fimm gaurar mættu á sviðið í líki sjóræningja, með skuplur á höfði í þröngum buxum og magaskyrtum Og þessi dans fékk líka ágætis klapp frá áhorfendum, sitt sýnist hverjumJ Svo í gaer fórum vid á einleik. Menningarvitinn loks að brjótast fram í mér! Skólinn gengur ágætlega, skiluðum fyrsta verkefninu okkar í síðustu viku. Ætluðum að verðlauna okkur með því að skála á sundlaugarbakka en það er búið að vera rigning núna síðustu daga þannig að ekkert varð úr því. Hérna eru tímarnir í skólanum 95 mínútna langir og ekkert hlé, ég á alveg ofsalega bágt með það, þar sem að athyglisspan mitt er ekki mikiðJ Þannig að ég dett út eftir svona sirka 40 mínútur og hef ekki hugmynd um það sem fer fram eftir það. Við ákváðum bara að taka tvo kúrsa, þar sem að það er svo mikil tímasókn...við tímum ekki að eyða meiri tíma í skólanum en við nauðsynlega þurfum. En við mætum sem sagt í hvorum kúrs fyrir sig í 2 x 95 mínútur á viku, sem sagt oftar en í 5 (10ects) eininga kúrs heima. Nemendurnir hérna eru í 7-8 svona kúrsum á viku. Það er líka mikið að lesa og verkefnaskil og miðannarpróf. Það er líka 50% fall í háskólanum hér, sem að mér finnst í rauninni ekki mjög skrítið. Svo er líka eitt annað mjög áhugavert, hérna ákveða nemendur prófdaga. Við spurðumst fyrir um daginn hvenær próftaflan kæmi, svo við gætum farið að kaupa flug heim, og fengum það svar að hún kæmi ekki fyrr en í des/jan þar sem nemendur en ekki kennarar ákveða prófin. Þetta fannst mér alveg stórmerkilegtJ Veit ekki alveg hvort að þetta myndi fúnkera heima í HÍ. Jæja snúllur, þetta var lesning dagsins í dagJ XX
»
29.09.2008 20:13:30 / siggatr
»
17.09.2008 19:25:48 / siggatr
Ég er komin med myndasídu á Flickr. Linkurinn er www.flickr.com/photos/siggat/Reyni ad setja myndir thar inn, annars er netid herna svo afskaplega haegt ad ég geri eins og ég nenni  XX
»
16.09.2008 19:15:33 / siggatr
Hérna á Kúbu
gerast hlutirnir ekki mjög hratt fyrir sig.
Ef að eitthvað bilar, þá er það bara bilað i einhvern tíma. Ef að
einhver hlutur klárast í búðinni líður slatta tími þangað til það kemur aftur.
Ég og Elín Lóa gerðum dauðaleit að uppþvottalegi og þvottaefni, en það var
hvergi til og enginn vissi hvenær það myndi koma aftur. En svo sem betur fer
fann hann Roberto það, þannig að núna getum við þvegið almennilega!
Kornfleksið mætti aftur í búðina í dag, búið að vera uppselt síðan á
miðvikudaginn í síðustu viku. Þetta er
partur af lífinu hérna, kúbverjar hafa ekki allt til alls og þegar eitthvað
klárast er það bara búið. Þeir eru líka ekkert að flýta sér að gera við
hlutina. Hérna rétt hjá okkur er pósturinn og á hurðinni stendur að það sé opið
frá 8-20 alla virka daga, nema hvað að það er búið að vera skilti á hurðinni
síðan við komum að þeir loka kl 16 vegna þess að loftræstingin er biluð. Það
verður gaman að sjá hvenær það verður tekið niður. />
Svo get ég líka
minnst á skólakerfið hérna, frekar skondið. Fórum í skólann í síðustu viku og
okkur var þá sagt að skólinn byrjaði ekki fyrr en 22.september. Fórum aftur í
gær til að tjékka á hlutunum og þá var okkur tilkynnt að skólinn byrjaði í gær,
öllu hafði verið flýtt um viku! Svo erum við að láta breyta visanu okkar,
úr túrista visa í nemenda visa, fyrst
var okkur sagt að það tæki 7 virka daga
en svo fórum við í dag og þá var okkur sagt tvær vikur. Það sem sagt liggur engum á hérna og allt
kemur bara með kalda vatninu! />
Fórum í fyrsta
tímann okkar í dag, Estudios afrocaribeños, s.s. afrókarabísk menning , ég get
svo svarið það ég skildi annað hvert orð sem kennarinn sagði! Þetta á eftir að vera áskorun! Sjáum til
hvernig þetta gengur allt saman! knús og kram!
»
10.09.2008 16:51:22 / siggatr
Jaeja, nú er Kúba ordin laus vid thennan vibba-fellibyl. Havana slapp nú samt alveg mjog vel, vid sluppum sem sagt vid augad á fellibylnum og thetta var eins og ein djúp og hressileg haustlaegd heima á fróni. Á mánudaginn thá voru risaradir fyrir framan allar verslanir sem seldu eitthvad matarkyns, hvort sem thad var braud eda pasta eda vatn. Vid bidum t.d. í 40 mínútna rod eftir braudi og thar hofdu bakararnir ekki undan ad baka braud fyrir alla. Svo bidum vid held ég í 20 mín fyrir utan súpermarkadinn til ad kaupa spaghettí. Thannig ad thad var sem sagt mikid hamstur í gangi hérna. Allt var svo lokad í gaer og héldu flest allir sér inni fyrir utan nokkra sem skutust á milli húsa. Rafmagnid var tekid af kl eitt adfaranótt thridjudags svona hálftíma ádur en thetta skall allt saman á og er enn thá ekki komid rafmagn (vid erum bara svo heppnar ad geta farid inn á fínt hótel med sinni eigin rafstod til ad komast á netid). Thad er alveg magnad ad fatta hvad madur er hádur rafmagninu, mér leiddist ekkert smá í gaer thó ég hefdi kerti, góda bók og spil. Thad er enn thá rigning og vindur og ég held ad thad eigi ad halda eitthvad áfram. Ég efast um ad vid forum ad ferdast eitthvad mikid, thar sem restin af Kúbu hefur ordid frekar illa úti í baedi Gustav og svo núna Ike. En vid getum thá bara hangid hér í Havanaborg og farid á strondina og maett brúnar og ferskar í skólann thegar hann byrjar  Fórum annars á strondina um helgina sem var alveg yndislegt, fyrir utan smá rafmagnsleysi og úrhellisrigningu Vid fórum út ad borda á laugardagskvoldid og thar kom upp ad okkur ungur madur og spurdi hvort hann maetti tileinka okkur lag. Litlu íslensku, lokudu stelpurnar vissu ekki alveg hvernig thaer aettu ad bregdast vid en kunnu ekki vid ad segja nei. Thannig ad minn maetti bara med songvara med gitar sér vid hlid og song fyrir okkur eitthvad rómó lag!  Madur er svo mikill íslendingur í sér ad ég var med nettan kjánahroll allan tíman og stardi annad hvort nidrí gólf eda horfi vandraedaleg á Elínu Lóu! Svo spurdan okkur hvort hann maetti vera vinur okkar en vid leidinlegu stelpur sogdum honum ad vid aetludum ad drífa okkur, en kannski á morgun!  Hafid thad gott thar til naest!  besos!
»
03.09.2008 22:57:21 / siggatr
Jaeja gott folk, nuna erum vid loks lentar i Habana og komnar inn a ofsa fint hótel med rándýru interneti sem er haegt en virkar...vid forum meira ad segja farnar ad paela ad hvort af vid fengjum nokkud ad maeta a feisbúkk...af thví ad thad er allt ritskodad  en ekkert mál...thad er allt haegt hérna. Íbúdin mjog fín á Sudur Ameríska standarda, tvo fín svefnherbergi med sitthvoru badinu og stofa med sjónvarpi meira ad segja...thetta er ekki alveg svo frumstaett herna  Hann Roberto sem a ibudina hefur bara leyfi fra yfirvoldum til ad leigja ut annad herbergid, thannig ad ef ad einhver hringir eda kemur verdum vid ad segja ad hann hafi bara skroppid ut i smastund. Svo kemur hann og spyr okkur, hvar sefur Roberto? og vid svorum i kór, í thessu herbergi  Hérna virdist vera haegt ad fa allt saman, en thad er enginn haegdarleikur ad ná sér í dót. Í dag fórum vid á fjóra stadi til ad kaupa braud, egg, graenmeti og tómatsósu. Og adeins einn hlutur var keyptur í búdinni og thad var tómatsósan  Fórum í skólann í dag og komumst af thví ad hann byrjar ekki fyrr en 22.sept! Vard nett pirr fyrst, en svo áttadi ég mig á thví ad thá fáum vid bara thriggja vikna sumarfrí hérna á Kúbu. Thannig ad vid aetlum ad reyna ad ferdast eitthvad  Jaeja snullurnar mínar, ég bid bara ad heilsa á klakann! Xx
»
18.02.2008 14:01:40 / siggatr
einhverjir sem koma enn hingað inn??
»
15.12.2006 00:24:46 / siggatr
Jæja, núna eru bara tvö próf eftir...þetta er að hafast  Sit hérna
og hlusta á Helgu Möller syngja um jólaklukkurnar sem hringja svo
skært. Jólin alveg að koma, en fyrst klára prófin...er samt ekki að
nenna þessu, var búin að gleyma hvað er leiðinlegt í prófum, hmm..
»
08.12.2006 11:20:26 / siggatr
Mér finnst alveg stórfurðulegt að maður sé farin að plana líf
sitt alveg fram til 2009, alveg hreint merkilegt skal ég segja
ykkur. Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég hugsaði
hversu kúl það væri þegar árið 2000 kæmi, þá yrði ég 17 og fengi
bílpróf Mér finnst þetta nú doltið scary, að ég viti hvar ég verð
árið 2009 (að öllu óbreyttu), ég sem hef aldrei planað einu sinni
ár fram í tímann....en þetta heitir víst að fullorðnast krakkar
mínir
Annars varð ég frekar pirruð áðan, átti að mæta í munnlegt próf
niðrí skóla, og þegar ég mæti er ekkert próf af því að
kennarinn er veikur...var ekki hægt að senda okkur email?? arg,
hvað ég varð pirruð...svo þegar ég kom heim var hann búinn að senda
email um nýjan próftíma...
jæja snúllur, farin að snúa mér af lærdómi
»
05.12.2006 18:54:12 / siggatr
So, here’s how it works:
1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod,
etc)
2. Put it on shuffle
3. Press play
4. For every question, type the song that’s playing
5. When you go to a new question, press the next button
6. Don’t lie and try to pretend you’re cool…
Opening Credits: In Love With You (Erykah Badu)-jæja lofar
góðu..
Waking Up: We Can Work It Out (The Beatles)-alltaf gott að vera
jákvæður
First day at school: Narrow Escape (Ray Lamontagne)-from
what??
Falling in Love: Too Much Brandy (The Streets)-hahahaha
Fight Song: Wonderwall (Oasis)
Breaking Up: Everyday I Love You Less And Less (Kaiser Chiefs)-
so true
Getting Back Together: Somewhere Only We Know (Keane)
Wedding: Þú bíður (allavegana) eftir mér (Ragnheiður
Gröndal)-það ætla ég rétt svo að vona
Birth of Child: Steady As She Goes (The Raconteurs)-það er ágætt
að þetta gangi jafnt fyrir sig
Final Battle: Sukie In the Graveyard (Belle and Sebastian)
Death Scene: Cuéntame Que Te Pasó-Hvað gerðist eiginlega??
Funeral Song: Til þín (Hjálmar)-Hærra minn Guð til þín, þá
eða?
End Credits: The Curse- Audioslave
Þetta var nú skemmtilegt svona þegar maður á að vera að
læra...hmm....
»
29.11.2006 11:14:03 / siggatr
Jæja, þá er ég búin með síðustu ritgerðina mína á haustönn,
frekar góð tilfinning og núna er bara að skella sér í
prófalestur. Svo fyrr en varir verða bara komin jól
Ég var að fatta um daginn að þegar ég les blogg hjá fólki sem ég
þekki, þá heyri ég röddina þeirra segja það sem ég er að
lesa...kemur þetta líka fyrir ykkur? heyriði í mér núna vera að
blaðra?
Annars var ég að rifja upp ökukennsluna mína, því stundum þegar
ég fer yfir á gulu ljós þá segi ég við sjálfa mig: jæja Sigga, svo
klárarðu þetta bara. Ökukennarinn minn sagði þetta alltaf við mig
ef að það kom gult ljós og það var ekki nógu mikill tími til að
stoppa....kannski er ég bara að verða geðveik
Einnig má til gamans geta að hann átti það til að kýla mig í hægri
öxlina þegar ég kíkti ekki til hægri á gatnamótum með hægrirétt,
hann réttlætti það svo að það hefði verið miklu verra ef að bíll
hefð keyrt inn í hægri hliðina...
endilega kíkið hingað inn: http://www.youtube.com/watch?v=0kWyaClf0KQ
ég átti svo ótrúlega bágt með mig á þjóðó í gær þegar ég var að
horfa á þetta...
later
»
22.11.2006 17:48:40 / siggatr
Það er svona þegar maður er að læra, þá dettur manni ýmislegt í
hug að gera sem maður vanalega myndi ekki gera...eins og til dæmis
í gær, þá datt ég í það að horfa á Skrekk, í beinni útsendingu.
Hver man ekki eftir spennunni sem fylgdi alltaf keppninni?....en
allavega í gær vildi svo skemmtilega til að Langholtsskóli bar
sigur úr býtum Það var ekki laust við að gamli
Langhyltingurinn í manni brytist fram með stolt í hjarta Ég hugsa
bara að þetta sé í fyrsta sinn sem Langholtsskóli vinnur þessa
keppni...við komumst nú ansi nálægt því hérna '98, var það ekki...í
2. sætið? Svo vildi svo skemmtilega til að hann Svenni náðist á
mynd þarna, og kallinn hoppandi sína hæð af gleði, að skólinn hefði
nú loksins unnið, og mátti lesa af vörum hans eitt stórt JESS
Go Langó!
»
19.11.2006 17:09:41 / siggatr
Jahá, það er ekki verið að grínast með þennan snjó!!! Mikið var
gaman að vakna í morgun og líta út um gluggann...hugsaði ég nú gott
til glóðarinnar að geta farið að jeppast á súkkunni hans Viktors,
þá er nú gott að hann átti ekki Polo til að lána mér. Fór í
heimsókn til ömmu áðan og bíllinn virkar svona líka vel, enda allt
niðrí móti. Síðan keyri ég hingað heim hin sallarólegasta, beygi
inn í innkeyrsluna og...shitt...sit föst ég hélt að þetta gæti
ekki gerst með svona fína bíla...og ég sit eins og asni í bílnum
þegar einmitt, blár lítill Polo, brunar framhjá mér, eins og þetta
væri nú pís of keik....síðan komu tveir herramenn og björguðu mér
úr krísunni....þetta 4W er eitthvað bilað á blessuðum bílnum, og
núna veit ég ekki hvort að ég eigi að hætta mér út úr stæðinu ( sem
að ég má btw. ekki vera lögð í)...kannski ég bara leggi honum
þangað til um jólin....eða allavega þar til þessi snjór hverfur

chaochao
»
16.11.2006 21:16:34 / siggatr
Ég hélt að ég væri að syngja mitt síðasta í fyrrinótt, sé fyrir
mér dánartilkynninguna: Sigríður Tryggva kafnaði í svefni. Ég
"vaknaði" sem sagt og gat ekki andað, lá á bakinu, sama hvað ég
reyni að draga andann get ég það bara ekki. Þá ætla ég að leggast á
hliðina en neinei ekkert gerðist, sem sagt ég í þeirri aðstöðu að
geta hvorki andað né hreyft mig (frekar creepy), þegar allt
einu (eftir að hafa sagt við sjálfa mig að núna væri annað hvort að
duga eða drepast) þá næ ég að anda aftur....ég get ekki lýst
fyrir ykkur hvað þetta var ótrúlega óhugnalegt Ég var
mjög meðvituð um mig það sem eftir lifði nætur. Hafið þið lent
í þessu?
»
Síður: 1 2 3 4
|
|